Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
10.5.2006 | 01:05
Basket, sól og Hondan
Fínt veður þessa dagana og hellings körfubolti á kvöldin. Svona á þetta að vera.
Ég er svo montinn af Hondunni minni. Núna var þriðji gaurinn að hringja og gera tilboð í hana. Samt er hún hvergi á söluskrá og alls ekki til sölu. Ekki örvænta lesendur góðir, þrátt fyrir öfga hátt boð tilkynnti ég gaurnum stoltur að Hondan væri bara ekki til sölu.
Þá hef ég hafið viðhald á Hondunni. Tók til bílskúrnum hjá Hlyni Kára og núna er Hondan þar í sínu fyrsta viðhaldsverkefni frá því að hún fékk mig sem eiganda árið 98´
Ég er að spá í að eiga þennan bíl að eilífu. Hondan hefur reynst mér vel í gegnum tíðina og verið ein af mínum traustustu og bestu vinum (ásamt pepsíi) Alltaf til staðar þegar ég þarf á henni að halda. Þar að auki er gott að sofa hjá henni ...réttara sagt í henni.
Held að hún verði bráðum soldið retro.
Trúmál og siðferði | Breytt 11.5.2006 kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Dresimagnum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar